Bæði Framsókn og Sjálfstæðisflokkur lofuðu því fyrir síðustu kosningar að stækka Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Ragnar Már Jónsson, tónlistarmaður og frambjóðandi Samfylkingarinnar, segir að vegna plássleysis sé kennt inni í kústaskápum og geymslum.

Fögur fyrirheit í aðdraganda kosninga

Meðal loforða sem finna mátti í kosningastefnu Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar var að stækka Tónlistarskólann. Sama loforð var að finna í kosningastefnu Framsóknar: „Stækka Tónlistarskólann. Búið er að gera ráð fyrir stækkun á skipulagi og hefja þarf vinnu við hönnun og framkvæmdir sem fyrst.“

Skipulags- og byggingaráð samþykkti svo þann 15. júní árið 2022 að hefja vinnu við stækkun skólans. Ekkert gerðist þó í málinu fyrr en fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram tillögu í bæjarstjórn 9. apríl 2025 um að setja á fót starfshóp sem hefði það hlutverk að undirbúa stækkunina. Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafnaði tillögunni.

Á þriðja hundrað barna á biðlista eftir tónlistarnámi

Samkvæmt þarfagreiningu sem unnin var af Tónlistarskólanum og lögð fram í fræðsluráði þann 18. febrúar síðastliðinn er húsnæði skólans löngu sprungið. Heildarbiðlisti er 247 nemendur og þar af eru 236 börn á leik- og grunnskólaaldri. Þörf er á fleiri kennslu-, æfinga- og tónleikarýmum.

Ragnar Már Jónsson, tónlistarmaður og frambjóðandi Samfylkingarinnar.

Ragnar Már Jónsson, tónlistarmaður, er starfsmaður Tónlistarskólans og frambjóðandi Samfylkingarinnar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann segir óboðlegt að kenna þurfi í kústaskápum og geymslum vegna plássleysis. „Vegna þessa er varla svigrúm til að fjölga nemendum í skólanum. Nemendafjöldi hefur nánast staðið í stað síðustu þrjá áratugi og hlutfall íbúa sem stunda nám við hann hríðfallið á þeim tíma,“ segir Ragnar Már. Um 600 nemendur stundi nám við skólann í dag en ættu að vera um 800 miðað við íbúaþróun.

Loforðin endurnýjuð rétt fyrir kosningar

Erindi Tónlistarskólans var tekið fyrir á fundi skipulags- og byggingaráðs þann 16. apríl. Fulltrúar Samfylkingarinnar sögðu meirihlutann vera að „vakna af djúpum dvala“ og reyni nú á síðustu stundu að efna gömul fyrirheit. „Hér er enn eitt dæmið um hringlandann og doðann sem hefur einkennt meirihlutann allt kjörtímabilið. Á sama tíma er ljóst að breiður stuðningur er við það innan bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að Tónlistarskóla Hafnarfjarðar verði sköpuð eins góð og traust umgjörð og mögulegt er hverju sinni. Nú reynir á að láta verkin tala,“ segir í bókuninni.

Ragnar Már bendir á að núverandi meirihluti hafi lofað stækkun Tónlistarskólans í nokkur kjörtímabil en alltaf sofni málið í nefnd beint eftir kosningar. „Enn og aftur hefur meirihlutinn uppi fögur fyrirheit rétt fyrir kosningar en erfitt er að treysta því að hann muni standa við þau í þetta skiptið.“

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading