Elín Anna Baldursdóttir skrifar:
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi byggt sjálfsmynd sína á því að vera flokkurinn sem megi treysta fyrir fjármálum. Þegar ársreikningur Hafnarfjarðar var kynntur var því fagnað: afgangur, uppbygging og jákvæðar tölur. En þegar reikningurinn er skoðaður í heild blasir við önnur mynd.
Afgangur sem stendur ekki einn
Rekstrarniðurstaðan byggir að stórum hluta á tekjum sem eru ekki varanlegar. Lóðasala og gatnagerðargjöld fylgja uppbyggingu og sveiflast með markaðnum. Þegar hægir á breytist myndin hratt.
Á sama tíma stendur grunnreksturinn, skólarnir, velferðarþjónustan og dagleg þjónusta við íbúa tæplega undir sér. Hlutfall tekna sem standa undir þessari þjónustu hefur minnkað og svigrúmið með því.
Þegar svigrúmið er lítið
Viðkvæmur rekstur þýðir minna svigrúm til að styðja börn og fjölskyldur, efla velferð, byggja húsnæði af ábyrgð og þróa samgöngur sem virka. Þetta eru ekki bara tölur á blaði heldur líf fólks.
Þegar fjármálin standa ekki á traustum grunni er það þjónustan sem finnur fyrst fyrir því og bitnar mest á þeim sem þurfa mest á henni að halda.
Forgangsröðun sem skiptir máli
Kostnaður í velferðar- og skólamálum hefur aukist, ekki vegna markvissrar uppbyggingar, heldur vegna hækkandi launakostnaðar og vaxandi þjónustuþarfar sem hefur ekki verið brugðist nægilega við.
Vilji íbúa er skýr: þjónusta við börn og ungmenni, velferðar-, húsnæðis- og samgöngumál skipta einna mestu. Reksturinn þarf að enduspegla þær áherslur.
Hvað viljum við gera öðruvísi?
Lausnirnar krefjast þess að forgangsraða og hugsa til lengri tíma.
Byggja tekjugrunn bæjarins á stöðugri uppbyggingu fremur en sveiflukenndum tekjum. Að taka ákvarðanir sem byggja á því sem við vitum að virkar og meta reglulega hvort þær skili þeim árangri sem stefnt er að.
Vanda skipulags- og samgöngumál með því að láta uppbyggingu og samgöngur haldast í hendur. Þétta byggð á réttum stöðum þar sem innviðir eru fyrir, tengja saman hverfi með öruggum og fjölbreyttum samgöngum og byggja blandað húsnæði með grænum og barnvænum svæðum. Þannig gerum við Hafnarfjörð aðsóknarverðan fyrir íbúa og fyrirtæki og leggjum grunn að stöðugum tekjum til framtíðar.
Fjárfesta í snemmbærri þjónustu og forvörnum, styrkja skólana, bæta aðgengi að frístundum og efla velferð og geðheilbrigðisþjónustu. Slík fjárfesting skilar sér ef til vill ekki í næsta ársreikningi en gerir það til lengri tíma með minni þjónustuþörf, lægri kostnaði og bættri líðan.
Vera heiðarleg við íbúa í umræðu um reksturinn, ekki draga aðeins fram þær tölur sem líta vel út.
Hafnarfjörður á skilið heiðarlegan rekstur.
Höfundur skipar 4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.










