Tillögu Samfylkingarinnar um ókeypis strætó fyrir börn á aldrinum 12-17 ára var vísað frá af meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á bæjarstjórnarfundi í gær. Var þetta í sjötta sinn á kjörtímabilinu sem Samfylkingin hefur lagt fram tillögu þess efnis og í sjötta sinn sem henni hefur verið hafnað.
Tillagan var síðast lögð fram í bæjarstjórn 11. febrúar síðastliðinn en var hún aftur lögð fram í gær í ljósi þess að bæði ungmennaráð og foreldraráð Hafnarfjarðar höfðu í millitíðinni hvatt bæjarstjórn til að samþykkja hana. Fulltrúar Samfylkingarinnar höfðu ekki erindi sem erfiði því meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar vísuðu tillögunni frá.
„Þá klárum við málið einfaldlega þegar við komumst í meirihluta“
Fulltrúar Samfylkingarinnar virðast þó ekki ætla að gefast upp á málinu því þeir gáfu til kynna að komist flokkurinn í meirihluta eftir komandi kosningar muni hann tryggja gjaldfrjálsan strætó fyrir börn. „Treysti meirihlutinn sér ekki til að samþykkja tillögu okkar,“ sagði Stefán Már Gunnlaugsson, bæjarfulltrúi, „þá klárum við málið einfaldlega þegar við komumst í meirihluta.“
Samfylkingin hefur sex sinnum á yfirstandandi kjörtímabili lagt fram tillögu í bæjarstjórn um ókeypis strætó fyrir börn og hefur meirihlutinn hafnað tillögunni í öll sex skiptin.





Leave a Reply