Á yfirstandandi kjörtímabili hafa fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar ítrekað ýtt á eftir því að ný heilsugæsla rísi á Vallasvæðinu. Meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur lítið orðið ágengt í þessum efnum þrátt fyrir fögur fyrirheit í samstarfssáttmála flokkanna. 12 ár eru liðin síðan meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar hætti við uppbyggingu heilsugæslustöðvar sem átti að rísa í Skarðshlíð.

Á þriðja ár liðið síðan ákvörðunar var að vænta „á allra næstu mánuðum“

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa verið í meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar frá árinu 2018. Meirihlutinn virðist lítið hafa aðhafst gagnvart ákalli eftir nýrri heilsugæslustöð, en í samstarfssáttmála flokkanna frá 2022 segir að „unnið verði að eflingu og stækkun heilsugæslunnar í samvinnu við ríkið með áherslu á heilsugæslu á Völlum/Hamranesi.“

Árið 2021 samþykkti bæjarstjórn samhljóða ályktun þess efnis að ný heilsugæsla skyldi rísa á Vallasvæðinu. Samfylkingin hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað kallað eftir því að þessari ályktun bæjarstjórnar verði fylgt eftir. Í nóvember 2023 lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar til að hefja tafarlaust formlegar viðræður við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um uppbyggingu nýrrar heilsugæslustöðvar á svæðinu.

Þeirri tillögu var hafnað af fulltrúum meirihlutans á þeirri forsendu að viðræður væru þegar í gangi. Valdimar Víðisson, núverandi bæjarstjóri, lagði þá fram bókun þar sem fram kom að ákvörðunar um uppbyggingu nýrrar heilsugæslustöðvar væri „að vænta á allra næstu mánuðum“. Nú eru liðnir ansi margir mánuðir og lítið frést af nýrri heilsugæslu í bæjarhluta sem mun telja 13 þúsund íbúa þegar hann er fullbyggður.

Fulltrúi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins ekki boðaður á fundi bæjarráðs

Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarráði hafa, á yfirstandandi kjörtímabili, fimm sinnum óskað eftir því að fulltrúi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verði boðaður á fund bæjarráðs til að ræða kröfuna um nýja heilsugæslustöð. Samfylkingunni hefur ekki enn orðið að ósk sinni og óljóst hvort bæjarstjóri hafi yfir höfuð reynt að verða við henni.

Á meðan íbúar Hafnarfjarðar bíða eftir aðgerðum verða þeir að sætta sig við að geta ekki bókað tíma hjá heimilislækni vegna álags á þær heilsugæslustöðvar sem fyrir eru í bænum. Fulltrúar Samfylkinginnar í fjölskylduráði hafa óskað eftir málinu á dagskrá ráðsins á þriðjudaginn og munu þar enn og aftur þrýsta á um að ráðist verði í uppbyggingu nýrrar heilsugæslu á Vallasvæðinu tafarlaust.

Hjúkrunarheimili og heilsugæsla áttu að rísa í Skarðshlíð árið 2015

Á kjörtímabilinu 2010-2014 lagði þáverandi meirihluti Samfylkingar og Vinstri grænna mikla áherslu á að í nýjasta hverfi bæjarins, Skarðshlíð, risi nýtt hjúkrunarheimil og heilsugæsla. Hönnun og undirbúningur framkvæmda hófst árið 2012, en unnið var út frá svokallaðri Eden-hugmyndafræði sem snýst um að virðing fyrir sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétti hvers einstaklings sé í fyrirrúmi.

Verkefnastjórn skipuð fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn og fulltrúum eldri borgara sá um undirbúning verkefnisins. Sumarið 2014 var hönnun hjúkrunarheimilisins tilbúin og stefnt var að opnun þess árið 2015. Á lóðinni var einnig gert ráð fyrir heilsugæslustöð sem átti að þjóna íbúum Valla, Skarðshlíðar og Hamraness og viðræður við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins voru langt komnar. Fyrsta skóflustungan var hins vegar aldrei tekin.

Framkvæmdum slaufað

Eftir kosningarnar 2014 tók nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar við stjórnartaumunum í Hafnarfirði. Þessi nýi meirihluti, undir forystu Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra, gerði það að einu af sínum fyrstu verkum að hætta við uppbyggingu hjúkrunarheimilis og heilsugæslu í Skarðshlíð sem hafði verið í undirbúningi allt kjörtímabilið á undan.

Þess í stað var ákveðið að stækka hjúkrunarheimilið Sólvang. Við þá framkvæmd bættust við 37 hjúkrunarrými, en fyrirhugað hjúkrunarheimili í Skarðshlíð átti að hýsa 60 íbúa. Ný hjúkrunarrými í Hafnarfirði urðu því mun færri en stefnt var að og opnun þeirra tafðist um 4 ár. Ekkert varð úr hugmyndum um nýja heilsugæslustöð í Hafnarfirði, hvorki í Skarðshlíð né annars staðar, og eftir 12 ára samfellda valdatíð Sjálfstæðisflokksins liggur enn ekkert fyrir um hvort – eða hvenær – hún muni rísa.

Uppdráttur að hjúkrunarheimili og heilsugæslu sem átti að opna í Skarðshlíð árið 2015.

Mest lesið

Discover more from Bærinn okkar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading